{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Road trip um Norður- og Suðurey á Nýja-Sjálandi


Fjalla við vatn á Nýja-Sjálandi
Sjá sem lista

Lengd

Amk. 3 vikur

Byrjar í / Endar í

Auckland - Christchurch

Áfangastaður

Nýja-Sjáland

Hvenær er best að fara

Nóvember - mars

Viltu vita meira?
Þetta sturlaða road trip mun leiða þig í gegnum allt það besta sem 2 aðaleyjar Nýja-Sjálands hafa upp á að bjóða á þremur vikum eða lengur. Við höfum sett inn nokkur af helstu stoppunum á þessari leið, en ef þú hefur meira en 3 vikur til að ferðast, þá er margt fleira sem þú getur séð!

Ævintýri í gegnum engi, jökla og snævi þakin fjöll þegar þú upplifir töfrandi tökustaði Lord of the Rings bíða þín. Upplifðu kíví gestrisni eins og hún gerist best og upplifðu allt það besta sem Nýja-Sjáland hefur upp á að bjóða.

Road tripið byrjar í Christchurch og endar í Auckland. Ef þú ferð ferð þessa leið þá leggst ekkert One-way gjald á heildarkostnað þinn (en það mun leggjast á ef þú ferð í hina áttina frá Auckland til Christchurch).

Þú gætir auðveldlega eytt 3 vikum á aðeins annarri eyjunni, en við höfum tekið saman það besta á þeim báðum sem þú getur upplifað á 3 vikum. Ef þú hefur meiri tíma, frábært! Þá færðu bara að upplifa enn meira.

Hvernig eru KILROY road trip?

Við hvetjum alltaf KILROY ferðalanga til að vera forvitna. Ekki keyra bara til að keyra. Stoppaðu þar sem þú getur, farðu niður þröngu hliðargötuna og ekki festast bara í húsbílnum. Kynnstu nýju fólki og kynntu þér nýjar leiðir til að gera hlutina. Kannaðu og vertu opin/n fyrir breytingum - það er þá sem ævintýrin gerast

*Frá verð á mann, miðað við 2 einstaklinga sem ferðast saman eldri en 25 ára. Hafðu samband við okkur ef þú ert aðeins yngri en það - það er ekkert vandamál!

 

Innifalið
  • Flug til Christchurch
  • Flug heim frá Auckland
  • Gisting í 1 nótt í Christchurch
  • Chaser húsbílaleiga (með ferjupassa) í 21 dag
  • Gisting í 2 nætur í Auckland
  • Bókunargjölf
  • Ráðgjöf hjá ferðasérfræðingi
Ekki innifalið
  • Ferðatrygging (en við getum aðstoðað þig við kaup á slíkri)
  • Máltíðir
  • Afþreyingar
alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

1. Ferðaáætlunin

Heim - Christchurch - Arthur's Pass - Fox Glacier - Wanaka - Queenstown - Fiordland - Stewart Island - Dunedin - Hanmer Springs - Marlborough - Wellington - Taupo - Rotorua - Waitomo hellarnir - Northland og Bay of Islands - Poor Knights Islands - Auckland - Heim

Mundu að þetta er aðeins ferðatillaga fyrir stóru ferðina. Ef þú vilt fá aðstoð við að hanna road tripið að þínum þörfum þá skaltu skrifa okkur og fá fría ráðgjöf. Og eitt enn! Þegar þú ferð í road trip er gott að vera með góða ferðatryggingu, við getum aðstoðað þig við kaup á slíkri.

2. Christchurch

Byrjaðu Suðureyjarferðina þína í Christchurch. Hjólaðu meðfram hinni fallegu Avon á og njóttu dýrindis veitinga í miðborginni. Þessi stúdentavæna borg er full af börum og skemmtilegu næturlífi. Vertu því viss um að skoða þig vel um hér áður en þú leggur af stað í road tripið. Við höfum innifalið gistingu hér svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því.

3. Arthur's Pass

Fyrsta viðkomustaður ferðalagsins er Arthur's Pass, sem er í þjóðgarðinum sem ber sama nafn. Þessi staður er magnaður og þú gætir allt eins vanist svona áfangastöðum á meðan þú ferðast um Nýja-Sjáland! Leggðu húsbílnum í smá stund og farðu í stórkostlega gönguferð annað hvort hálfan eða heilan dag. Það verður þess virði, við lofum!

4. Fox og Franz Josef jökullinn

Haltu áfram eftir vesturströnd Suðureyjar þar til þú kemur að Fox jökulnum. Þessi stórbrotni jökull er 13 km langur og tindurinn er í um 2800 metra hæð yfir sjávarmáli. Stuttu frá er annar jökull sem við getum einnig mælt með - Franz Josef jökullinn. Hann er alveg jafn flottur og býður upp á mörg göngutækifæri.

5. Wanaka og Queenstown

Frá jöklunum heldurðu áfram suður í átt að Wanaka og Queenstown. Wanaka er alveg þess virði ef þú vilt upplifa ótrúlegri náttúru. Vatnið er frægt fyrir tréið í miðjunni sem táknar von. Nálægt Wanaka finnur þú Roys Peak sem er mögulega einn fallegasti staður jarðar eins og þú sérð á myndinni. Næst á dagskrá er Queenstown sem er umkringdur fjöllum og kristaltæru stöðuvatni. Kveiktu á adrenalíninu með því að skella þér í fallhlífarstökk eða teygjustökk.

6. Fiordland

Einn mest heillandi staður Nýja-Sjálands, Fiordland er heimkynni fossa sem falla hundruð metra niður í djúpa svarta firði og forna regnskóga sem loða við há fjöll. Hér finnur þú nokkrar fallegar gönguleiðir en við mælum líka með kajaksiglingu til að fá góða tilfinningu fyrir stórkostlegu fjörðunum.

7. Stewart Island

Suður af Suðureyju finnur þú þriðju stærstu eyju landsins, Stewart Island. Falleg eyja með um 700 km strandlengju. Þessi staður er frægur fyrir fjölbreytt dýralíf og ótrúlegar gönguleiðir. Það er einungis um 28 km vegur á eyjunni, svo þú þarft að eiga góða gönguskó ef þú vilt komast um. Þú getur síðan verið heppin/n og komið auga á höfrunga og hvali!

8. Dunedin og Kaikorai

Dunedin er ein af minna þekktum gimsteinum Suðureyjunnar. Í viktoríska bænum finnur þú eina kastala Nýja-Sjálands (Larnach Castle), fallega lestarstöð og hina glæsilegu St. Paul's Cathedral.

Gangtu upp Baldwin Street og niður aftur. Þetta er brattasta gata í heimi, svo það tekur auðveldlega 10 mínútur að ganga aðeins 350 metra!

Á Otago-skaganum getur þú svo séð albatrossa, mörgæsir, seli og mörg önnur dýr.

9. Hanmer Springs

Það er langur akstur frá Dunedin til Hanmer Springs, svo vertu viss um að stoppa annað slagið. Hanmer Springs er hitavatnsparadís með fallegum hevrum í fallegri náttúru. Þetta svæði er líka eitt besta vínsvæði Nýja-Sjálands, svo það er ekkert mál að fá sér gott glas á meðan þú ert hér (ef þú ert ekki að fara að keyra meira!).

10. Wellington

Frá Hanmer Springs heldurðu áfram til Wellington, en við hvetjum þig einnig til að stoppa í Marlborough á leiðinni. Taktu ferjuna til Wellington. Wellington er staðsett á syðsta odda Norðureyjar og er heimili Weta Workshop og Weta-hellisins. Hér geturðu skoðað töfra kvikmyndagerðar og nærliggjandi tökustaði. Borðaðu á góðum veitingastöðum og taktu kláfinn til Kelburn útsýnisstaðarins fyrir stórkostlegt útsýni yfir höfnina. Ef þú ert að leita að góðum stað til að borða á, getum við mælt með Chocolate Fish Café sem er aðeins fyrir utan miðbæinn. Þetta er local kaffihús og aksturinn þangað meðfram ströndinni er alveg frábær!

11. Taupo og Rotorua

Frá Tongariro liggur leiðin til Taupo, heimili hins fræga Lake Taupo og Huka fossanna. Við hvetjum þig til að skoða hvort tveggja. Ef þú elskar útivist getur þú farið í göngu á topp Tauharafjalls og notið fallega útsýnisins. Eftir gönguna geturðu slakað á í náttúrulegri nuddlaug við Otumuheke Stream.

Næst er Rotorua, sem er eitt líflegasta jarðhitasvæði heims. Skoðaðu kraumandi leðjulaugar og goshveri, eða fáðu adrenalínið í gang með skemmtilegum afþreyingum. Upplifðu heillandi Maori menningarsýningu eða marae dvöl.

12. Waitomo hellarnir

Neðanjarðarhellar og Glow worms. Í um það bil 2 tíma akstursfjarlægð frá Taupo eru Waitomo hellarnir, Heillandi völundarhús neðanjarðar sundir grænu ræktuðu landi. Farðu í göngu- eða bátsferð, flúðasiglingu eða zip line í gegnum myrkrið.

13. Bay of Islands og Poor Knights Island

Um það bil 3 klukkustundir norður af Auckland, munt þú finna litla fallega bæinn Paihia. Hann er fallega staðsettur við Bay of Islands. Þar er notalega stemning og fullt af börum og veitingastöðum ásamt fallegri sandströnd. Ef þú hefur tíma geturðu ferðast til Russell í grenndinni eða þú getur skoðað eitthvað af sjávarlífinu, þar á meðal seli, höfrunga eða jafnvel hvali ef þú ert heppin/n. Þú ættir líka að heimsækja Poor Knights Island þar sem sjávarlífið er magnað ef þú elskar að snorkla eða kafa.

14. Auckland

Road trip þitt um Norðurey Nýja-Sjálands endar þar sem hún byrjarði, aftur í Auckland. Skilaðu húsbílnum þínum og skráðu þig inn á hostelið sem við höfum bókað fyrir þig í tvær nætur. Taktu því rólega og vertu viss um að skoða allt sem þú átt eftir að sjá í borginni. Ef þú vilt síðan ekki taka því rólega gætir þú skellt þér í teygjustökk!

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.