{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Route 66 road trip


Route 66 skilti
Sjá sem lista

Lengd

3 vikur

Byrjar í / Endar í

Chicago - Los Angeles

Áfangastaður

USA

Besti tíminn til að fara

Um vor og snemma um haust

Viltu vita meira?
Lokið var við leiðina árið 1926 og fékk hún nafnið Route 66. Nærri 4000 km liggja frá Grant Park í Chicago til Santa Monica Boulevard í Los Angeles í gegnum þrjú tímabelti og átta fylki - Illinois, Missouri, Kansas, Oklahoma, Texas, New Mexico, Arizona og Kaliforníu.

Rithöfundurinn John Steinbeck nefndi hann „The Mother Road“ og Route 66 hefur alltaf verið samheiti við að vera á ferðinni - í átt að draumi eða að flýja glötuð tækifæri og svikin loforð. Route 66 hefur allt sem Bandaríkin eru þekkt fyrir. Þú munt finna borgir sem aldrei sofa, sléttur svo langt sem augað nær og litlar hamborgarabúllur með heimagerðum hamborgurum. Svo ekki sé minnst á ótrúlega náttúrufegurð.

Við höfum sett inn bílaleigu bíl fyrir þessa ferð en þú getur breytt honum í húsbíl ef þú vilt, valið er þitt! Það er líka gott að hafa í huga að þú sért með góða ferðatryggingu þegar þú leigir bíl erlendis. Við getum aðstoðað þig við það!

Hvernig eru KILROY road trip?

Við hvetjum alltaf KILROY ferðalanga til að vera forvitna. Ekki keyra bara til að keyra. Stoppaðu þar sem þú getur, farðu niður þröngu hliðargötuna og ekki festast bara í húsbílnum. Kynnstu nýju fólki og kynntu þér nýjar leiðir til að gera hlutina. Kannaðu og vertu opin/n fyrir breytingum - það er þá sem ævintýrin gerast

*Frá verð á mann, miðað við 2 einstaklinga sem ferðast saman eldri en 25 ára. Hafðu samband við okkur ef þú ert aðeins yngri en það - það er ekkert vandamál!

Innifalið
  • Flug til Chicago
  • Gisting í 2 nætur í Chicago
  • Bílaleiga í 21 dag (Hertz FCAR model)
  • Surfbúðir í Dana Point
  • Gisting í 3 nætur í Los Angeles
  • Flug heim frá Los Angeles
  • Bókunargjöld
  • Ráðgjöf hjá ferðasérfræðing
Ekki innifalið
  • Ferðatrygging (en við getum aðstoðað þig við kaup á slíkri)
  • Máltíðir
  • Afþreyingar
alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

1. Ferðaáætlunin

Heim - Chicago - Springfield - Kansas City - St Louis - Joplin - Oklahoma City - Amarillo - Santa Fe - Gallup - Grand Canyon - Las Vegas - Los Angeles - Heim

Route 66 byrjar formlega í Chicago og endar í Los Angeles, en þú getur líka snúið leiðinni við og farið frá LA til Chicago í staðinn. Þannig verður ferðin líka umtalsvert ódýrari þar sem þú getur forðast One way gjaldið sem bætist við leiguna þegar þú lýkur ferð í LA.

Mundu að þetta er aðeins ferðatillaga fyrir stóru ferðina. Ef þú vilt fá aðstoð við að hanna road tripið að þínum þörfum þá skaltu skrifa okkur og fá fría ráðgjöf. Og eitt enn! Þegar þú ferð í road trip er gott að vera með góða ferðatryggingu, við getum aðstoðað þig við kaup á slíkri.

2. Chicago, Illinois

Route 66 byrjar í Chicago. Ef þú ert að heimsækja Chicago ættirðu ekki að missa af körfuboltaleik með Chicago Bulls. Mundu líka að heimsækja einn af mörgum retro blús börum borgarinnar áður en þú sækir bílaleigubílinn og byrjar road trippið.

3. Kansas City, Missouri

Næst mælum við með því að þú farir smá krók og kíkir við í Kansas City! Heimsæktu hið þekkta Power and Light District og upplifðu allt sem þessi staður hefur upp á að bjóða: bari, lifandi tónlist, mat og verslanir. Þú getur líka skellt þér á amerískan fótboltaleik eða hafnarboltaleik! Það er auðvelt að fá miða og þú getur verið viss um að það verður gaman.

4. Springfield, Illinois

Springfield er fyrsta iconic stoppið þitt á Route 66! Borgin er heimabær Abrahams Lincolns og þú getur fengið innsýn í fyrsta heimili hans "Lincoln Home National Historic Site". Springfield er líka fæðingarstaður Corn dogs og drive-thru veitingastaða.

5. St. Louis, Missouri

Í þessu stoppi í borginni St. Louis skaltu heimsækja ísbúðina Ted Drewes! Þú ættir líka að fara í göngutúr meðfram Mississippi ánni og taka selfie fyrir framan risastóra Gateway Arch.

6. Joplin, Missouri

Gamall námubær Joplin er næsti viðkomustaður á leiðinni. Mundu að heimsækja gamla bæinn og Route 66 Carousel Park!

7. Oklahoma City, Oklahoma

Í Oklahoma muntu örugglega hitta aðra Route 66 ferðamenn alls staðar að úr heiminum. Stoppaðu á Route 66 Vintage Iron Motorcycle Museum og National Cowboy & Western Heritage Museum! Gakktu úr skugga um að skoða líka Bricktown, fagurt hverfi með gömlum vöruhúsum sem starfa nú sem veitingastaðir, barir og verslanir.

8. Amarillo, Texas

Howdy y'all! Allt er stærra í Ameríku og það á líka við um Texas. Prófaðu teygjanleika maganas á Big Texan Steak Ranch - ef þú getur borðað 2 kg steik á innan við klukkutíma færðu hana ókeypis! Ef þú vilt fá ekta kúrekaupplifun, farðu þá á Amarillo búfjáruppboðið þar sem þú getur hitt alvöru kúreka.

9. Santa Fe, New Mexico

Á ferðinni frá Amarillo muntu fara framhjá hinu undarlega aðdráttarafli 'Cadillac Ranch' þar sem 10 klassískir Cadillac bílar eru hálf grafnir í jörðu. Ferðinni er síðan haldið til hinnar sögufrægu borgar Santa Fe, sem er ein af elstu borgum Bandaríkjanna. Mundu að gefa þér tíma til að slaka á í einum af mörgum hverum New Mexico.

10. Gallup, New Mexico

Það er kominn tími til að fræðast um menningu og sögu frumbyggja Ameríku! Þriðjungur íbúa Gallup er af indjána ættum. Indjána leiðsögumenn á staðnum geta sýnt þér um fallegar rústir "Sky City" í Acoma native American Reservation.

11. Grand Canyon, Arizona

Með töfrandi og einstöku landslagi er Grand Canyon sannkallað náttúruundur. Umhverfið er fallegt og á staðnum er líka spennandi menningarsaga. Það er sannarlega þess virði að keyra fjarlægðina frá Flagstaff til að komast hingað!

12. Las Vegas, Nevada

Það er kominn tími til að skoða Sin City! Las Vegas er paradís ef þú elskar djamm og fjárhættuspil.... augljóslega. Gakktu úr skugga um að þú skoðir The Strip að nóttu til. Ljósin hér eru ótrúleg - sérstaklega ef þú ert að heimsækja borgina í fyrsta skipti.

Gerðu skýran samning við sjálfa/n þig um hversu miklu þú ætlar að eyða í fjárhættuspil (ef það er það sem þú ætlar að gera) - þú vilt ekki vera búin/n með allan vasapeninginn á öðru stoppi road trippsins!

Pro tip: Keyrðu I-15 til Las Vegas frá norðri, og helst þegar það er dimmt. Það er magnað!

Eftir að hafa skoðað borgina gætirðu líka keyrt til að sjá Hoover stífluna um 40 mínútur frá Las Vegas. Það sérðu stórkostlega blöndu af náttúru, sögu og eðlisfræði!

13. Los Angeles og Dana Point, Kalifornía

Ljúktu road trippinu þínu með því að reyna að spotta fræga fólkið í Hollywood, heimsókn í Universal Studios og Six Flags Magic Mountain og verðskuldaða slökun á ströndinni í Santa Monica.

Við höfum líka innifalið 7 daga surfbúðir í Dana Point í þessari ferðaáætlun, þar sem þú getur æft þig í að ná tökum á öldunum á meðan þú kynnist öðrum bakpokaferðalögum víðsvegar að úr heiminum. Ekki slæm leið til að enda epíska ævintýrið þitt um Bandaríkin!

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.