Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Ferðaleiðin: Keflavík - Amman - Ajloun - The Dead Sea - Petra - Wadi Rum - Cairo - Sharm el Sheikh - Keflavík
Ath: Þú getur annað hvort sameinað þessa ferð við lengra bakpokaferðalag eða verið bara í þessa daga. Við getum hjálpað þér við að skipuleggja bæði.
Þú flýgur til Amman í Jórdaníu, þar sem fyrsta ævintýrið þitt er 8 daga hópferð um landið. Ásamt öðrum bakpokaferðalöngum frá öllum heimshornum færðu að upplifa Dauðahafið, heimsundrið, borgina Petra og hina mögnuðu Wadi Rum eyðimörk. Allt í allt, ansi epísk ferð til nokkurra allra bestu áfangastaða í Jórdaníu, mjög vanmetinn ferðamannastaður ef þú spyrð okkur! Mundu að taka með þér góða gönguskó!
Við mælum með því að stoppa í nokkra daga í Kaíró. Borgin sjálf er ekki aðeins þess virði að heimsækja með iðandi andrúmslofti, mörgum markaðstorgum og helgimynda ánni Níl, heldur ættir þú að sjálfsögðu líka að heimsækja Pýramídana, annað heimsundrið sem þú færð að upplifa í þessari ferð. Borgin getur virst dálítið óskipuleg í fyrstu, en fagnaðu fjölbreytileikanum og farðu með straumnum, í borg sem býður upp á fullt af flottum menningarlegum hápunktum.
Við höfum innifalið 8 daga dvöl í köfunarbúðum, þar sem þú getur lært að kafa. Rauðahafið er fullt af frábærum köfunarstöðum, með fjölbreytt sjávarlíf, flök og frábært skyggni. Á skömmum tíma muntu ná tökum á listinni að kafa. Ef þú ert nú þegar með PADI vottorð geturðu valið að fara í skemmtiköfun í staðinn. Þú ræður. Ferðaáætluninni lýkur hér, þar sem við höfum innifalið flug heim, en ef þú vilt halda áfram að ferðast láttu okkur vita og við reddum því fyrir þig.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.