{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Staðan á Mið-austurlöndum

Uppfært 6. mars 2026 kl. 09:12

 

Öryggi ferðalanga okkar er ávallt í forgangi. Við fylgjumst grannt með þróun mála í Mið-Austurlöndum og erum í reglulegu sambandi við flugfélög og samstarfsaðila okkar á svæðinu.

 

Vegna stöðunnar hafa orðið truflanir á flugumferð í hluta Mið-Austurlanda og í sumum tilfellum eru ákveðnar flugleiðir eða tengingar ekki í boði að svo stöddu. Það þýðir að ekki er hægt að ferðast um sum lönd á svæðinu eins og staðan er núna.

 

Ferðir til margra áfangastaða í Asíu eru þó enn mögulegar, þó að stundum þurfi að breyta leiðinni eða fara aðrar tengingar en upphaflega var áætlað.

 

Teymið okkar vinnur nú náið með flugfélögum og samstarfsaðilum að því að finna öruggar og hagkvæmar lausnir fyrir þá viðskiptavini sem kunna að verða fyrir áhrifum. Við höfum samband við þá sem eiga bókaða ferð á næstu dögum um leið og nýjar upplýsingar liggja fyrir.

 

 

Tilmæli frá utanríkisráðuneytinu

Utanríkisráðuneytið biður Íslendinga í Ísrael, Íran, Írak, Kúveit, Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Barein og Katar að láta aðstandendur vita af sér. Ef aðstoðar er þörf er hægt að hafa samband við neyðarnúmer borgaraþjónustu í síma +354 545-0112 eða senda tölvupóst á [email protected].

 

Við hvetjum alla sem eru á svæðinu til að virða tilmæli yfirvalda og fylgjast með staðbundnum fjölmiðlum. Utanríkisráðuneytið fylgist grannt með þróun mála.

 

 

Er ferðin þín innan 3 daga?

Ef þú ert að fara í ferð innan 3 daga og hefur ekki enn fengið upplýsingar frá okkur, vinsamlegast hafðu samband í síma 517 7010.

 

Ef um er að ræða brýnt mál utan opnunartíma er hægt að nota neyðarsíma okkar.

 

 

Er ferðin þín síðar?

Ef ferðin þín er meira en 4 daga fram í tímann þarftu ekki að hafa samband við okkur að svo stöddu. Við munum hafa samband við þig ef staðan hefur áhrif á ferðina þína.

 

Við skiljum vel að þessar aðstæður geti skapað óvissu og þökkum kærlega fyrir þolinmæðina á meðan við aðstoðum fyrst þá sem verða fyrir mestum áhrifum.

 

Ofangreindar upplýsingar eiga við um viðskiptavini sem hafa bókað pakkaferð hjá okkur. Ef þú hefur aðeins bókað flug í gegnum KILROY á netinu, hvetjum við þig til að hafa samband við okkur í gegnum eyðublaðið hér.

 

 

Algengar spurningar

Get ég enn ferðast til áfangastaðarins míns?
Já, í flestum tilfellum er enn hægt að ferðast. Þó að ákveðnar tengileiðir í gegnum Mið-Austurlönd séu tímabundið ekki í boði, þá eru í boði aðrar leiðir og við hjálpum þér að finna bestu lausnina.

 

Er óhætt að ferðast núna?
Við förum eftir tilmælum yfirvalda og utanríkisráðuneytis. Ef engar ferðaviðvaranir eru í gildi til þíns áfangastaðar telst það öruggt að ferðast, og við tryggjum að ferðin þín sé vel skipulögð og örugg.

 

Er bókun mín í hættu?
Við fylgjumst náið með stöðunni og höfum samband við alla viðskiptavini sem kunna að verða fyrir áhrifum. Ef ferð þín þarfnast breytinga munum við láta þig vita og hjálpa þér aðlaga ferðaplanið.

 

Af hverju hef ég ekki heyrt frá ykkur enn?
Við forgangsröðum þeim sem eiga ferð á allra næstu dögum. Ef þú ert að ferðast síðar, þá þarftu ekki að hafa samband að svo stöddu, við höfum samband ef breytingar verða sem hafa áhrif á ferðina þína.

 

Hvað ef ég bókaði bara flug?
Þessi upplýsingar eiga fyrst og fremst við þá sem hafa bókað pakkaferð hjá KILROY. Ef þú hefur aðeins bókað flug í gegnum KILROY á netinu, hvetjum við þig til að hafa samband við okkur í gegnum eyðublaðið hér.

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.