Dúbaí
Dúbaí hefur verið í mikilli uppsveiflu síðustu þrjá áratugi. Áður fyrr var borgin aðeins sandhólar og eyðimörk en í dag er hún sjóðandi heitur áfangastaður. Mikil uppbygging og stórkostlegt skipulag, alþjóðlegt umhverfi, sól allan ársins hring og arabísk gestrisni - allt gerir þetta borgina litríka og spennandi. Í Dúbaí er eyðimerkurloftslag svo hitinn getur verið verulegur í júní-september en annars er hlýtt allan ársins hring.
Gott að vita
💰 Verðlag: Gott, flest er til dæmis ódýrara en í Bandaríkjunum
☀️ Veður: Eyðimerkurloftslag
🍸 Næturlíf: Gott, mikið um að vera
Víetnam
Í Víetnam finnur þú fallegar hvítar sandstrendur, asískan hágæðamat, gróskumikla hrísgrjónaakra, stórbrotna fjallasýn og ótrúlega sögu. Hér eru vinsæl ferðamannasvæði en einnig faldar perlur sem fyrir marga ferðalanga er raunverulega ferðaupplifunin. Víetnam er svo sannarlega einstakur áfangastaður. Víetnam hefur þrjú mismunandi veðurkerfi svo veðrið getur verið mjög breytilegt eftir því hvar þú ert í landinu. Yfirleitt er veðrið þó hlýtt og rakt.
Gott að vita
💰 Verðlag: Mjög gott, ódýr matur og ódýrt áfengi
☀️ Veður: Landið hefur þrjú mismunandi veðurkerfi en oftast er veðrið hlýtt og rakt
🍸 Næturlíf: Gott, mikið um að vera