{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Gönguklúbburinn til Himalayafjalla


Base Camp á Mount Everest í Himalayafjöllum
Sjá sem lista

Lengd

16 dagar

Áfangastaðir

Dúbaí/Doha & Nepal

Hápunktar

Himalayafjöllin & Chitwan

Verð frá

390000 ISK

Viltu vita meira?
Það er fátt meira endurnærandi en fjallaloftið í Himalayafjöllum og fátt fallegra en útsýnið frá tehúsunum þegar sólin rís á morgnana. Hvað þá að vera staddur á slíkum stað með gönguklúbbnum sem er líklega vanari Esjunni en Everest! Göngur í Himalayafjöllunum eru þó ekki einungis fyrir göngugarpa, hér er að finna göngur og afþreyingar fyrir alla.

Ferðin

Ferðin hefst á flugi til Nepal þar sem þið stoppið á leiðinni og getið eytt tveimur nóttum í Dúbaí eða Doha þar sem þið gistið á 4* hóteli með morgunmat. Það er tilvalið að stoppa í þessar tvær nætur ef enginn í hópnum hefur kynnst Arabíuskaganum áður. Þar getið þið gengið um lifandi götumarkaði og skellt ykkur svo í alvöru eyðimerkursafarí.

Eftir frábærar tvær nætur tekur síðan við flug til höfuðborgar Nepal, Kathmandu. Þar verður gist í tvær nætur og gönguhópurinn getur upplifað borgina. Þar er tilvalið að þræða búðirnar í Thamel hverfinu, skoðunarferð farin í Boudhanath þar sem ein þekktasta stúpa heims stendur og ef einhvern vantar útivistarfatnað fyrir komandi daga er lítið mál að redda slíkum hlutum í þessari einstöku borg.

Næstu 6 dagar einkennast síðan af fjallalofti, mögnuðu útsýni, stórfenglegum tindum, ösnum og jakuxum í halarófum arkandi upp og niður fjöllin. Gengið er að meðaltali 6 tíma á dag en þessi ferð norður af Pokhara er þekkt sem fallega Ghandruk - Ghorepani gangan, með stórkostlegu útsýni yfir Himalajafjöll frá toppi Poon Hill. Poon Hill er einn besti staðurinn fyrir myndavélina þína til að fanga Himalaya; þar á meðal Machhapuchhare, Annapurna og Dhaulagiri.

Eftir krefjandi göngudaga er haldið áleiðis af stað til Chitwan þjóðgarðsins þar sem þið munuð eiga þrjá daga í allt öðru landslagi og andrúmslofti. Farið verður í jeppasafarí, kanóferð og allir fá að upplifa matreiðslunámskeið í garðinum. Nepal dvölinni líkur síðan aftur í Kathmandu þar sem gist verður í eina nótt áður en flogið verður af stað heim til Íslands.

Fá fría ferðaráðgjöf

Innifalið
  • Flug
  • Gisting á 4* hótel við ströndina með morgunmat í Dúbaí/Doha
  • Gisting í tvær nætur í Kathmandu
  • 6 daga Ghorepani Poon Hill ævintýraganga
  • 3 daga ævintýraferð um Chitwan þjóðgarðinn
Ekki innifalið
  • Aðrar afþreyingar
  • Ferðatrygging - en við getum aðstoðað þig við að festa kaup á slíkri

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.