Velkomin í seríu 2 af KILROY kastinu
Á áætlun er hlaðvarpið þar sem við förum yfir allt sem tengist ferðalögum, menningu, ævintýrum og óvæntum uppákomum erlendis. Hvort sem þú ert að skipuleggja heimsreisu, spá í sjálfboðastarfi eða þarft bara smá innblástur fyrir næstu ferð, þá ertu á réttum stað.
Kynnar þáttarins eru Rebekka og Bergrún Sóla, sem báðar hafa ferðast víða, lent í ótrúlegustu aðstæðum og elska að miðla af reynslu sinni þegar kemur að ferðalögum.
Í þessari seríu fáum við til okkar skemmtilega gesti, ásamt því að fara vel yfir heimsálfurnar - vinsælustu staðina, ótroðnar slóðir og margt fleira skemmtilegt.
Um hlaðvarpið
S2E1: Catch-up: ferðalögin síðan síðast
Í fyrsta þætti af seríu 2 af KILROY kastinu: Á áætlun hittum við þáttastjórnendurnar Rebekku og Bergrúnu Sólu á ný.
Við kynnumst þeim enn betur og fáum innsýn í hvað þær hafa verið að bralla síðan síðast.
Vertu með frá fyrsta þætti og fáðu innblástur fyrir þitt eigið ferðalag! ✈️
S2E2: Suður- og Mið-Ameríka
Í þessum þætti ræðum við um Suður- og Mið-Ameríku.
Rebekka og Sóla taka okkur með í ferðalag um heimsálfuna þar sem þær deila skemmtilegum staðreyndum, vinsælustu áfangastöðunum og spennandi ótroðnum slóðum.
Þær segja einnig frá persónulegri reynslu, ævintýrum og eftirminnilegum sögum frá eigin ferðalögum um Suður- og Mið-Ameríku.
Vertu með og fáðu innblástur fyrir næstu ferð! ✈️
S2E3: Rakel María og Guðmundur Lúther: Ævintýri í Afríku
Í þessum þætti fáum við til okkar frábæra gesti, þau Rakel Maríu og Gumma Lú. Þau eru bæði miklir íþróttaálfar sem starfa við markaðsmál, auk þess starfar Rakel á samfélagsmiðlum, við förðun og fleiri skemmtileg verkefni. Í janúar lögðu þau af stað í draumaferðina sína til Afríku, ferð sem Rakel hafði lengi dreymt um.
En þetta var ekki aðeins ævintýraferð full af skemmtilegum upplifunum, eins og safari þar sem þau sáu The Big 5, road trips og óteljandi ógleymanleg augnablikum - heldur varð ferðin enn sérstakari þegar Gummi bað Rakelar sinnar heittelskuðu. Við fáum að heyra alla ferðasöguna og hvernig trúlofunin fór fram, beint frá þeim!
Vertu með og fáðu innblástur fyrir næstu ferð! ✈️
S2E4: Afríka
Í þessum þætti ræðum við um Afríku. Rebekka og Sóla taka okkur með í ferðalag um heimsálfuna þar sem þær deila skemmtilegum staðreyndum, vinsælustu áfangastöðunum og spennandi ótroðnum slóðum.
Þær segja einnig frá persónulegri reynslu, ævintýrum og eftirminnilegum sögum frá eigin ferðalögum um Afríku.
Vertu með og fáðu innblástur fyrir næstu ferð! ✈️
S2E5: Curly FM
Í þessum þætti fáum við til okkar góða gesti, þá Arnar og Jakob, sem halda úti hlaðvarpinu Curly FM. Í janúar á þessu ári fóru þeir til Koh Samui í Taílandi í fjögurra vikna ferð þar sem þeir tóku upp podcast þætti á meðan dvölinni stóð. Þar fengu þeir til sín fjölmarga vini í heimsókn og skemmtu sér konunglega.
Eftir dvölina á Koh Samui héldu Arnar og Jakob áfram í sannkallað KILROY-ævintýri.
Þeir segja okkur alla ferðasöguna og frá skemmtilegum uppákomum í þættinum.
Vertu með og fáðu innblástur fyrir næstu ferð! ✈️
S2E6: Asía
Í þessum þætti ræðum við um Asíu.
Rebekka og Sóla taka okkur með í ferðalag um heimsálfuna þar sem þær deila skemmtilegum staðreyndum, vinsælustu áfangastöðunum og spennandi ótroðnum slóðum.
Þær segja einnig frá persónulegri reynslu, ævintýrum og eftirminnilegum sögum frá eigin ferðalögum um Asíu.
Vertu með og fáðu innblástur fyrir næstu ferð! ✈️
S2E7: Dóra Júlía: Drauma brúðkaupsferð
Í þessum þætti fáum við til okkar yndislegan gest hana Dóru Júlíu, DJ og pilates drottningu Íslands. Í desember í fyrra fóru þær Dóra Júlía og konan hennar Bára, í drauma brúðkaupsferðina sína til Tælands. Dóra Júlía segir okkur alla ferðasöguna, deilir eftirminnilegum augnablikum og segir frá því hvernig brúðkaupsferðin gaf þeim tækifæri til að slaka á, njóta samverunnar og vera í núinu.
Vertu með og fáðu innblástur fyrir næstu ferð! ✈️
S2E8: Eyjaálfa með Rakel ferðaráðgjafa hjá KILROY
Í þessum lokaþætti af seríu 2 af KILROY kastinu taka þær Rebekka og Sóla okkur með í ferðalag um heimsálfuna þar sem þær deila skemmtilegum staðreyndum, vinsælustu áfangastöðunum og spennandi ótroðnum slóðum.
Við fáum einnig til okkar frábæran gest, hana Rakel, sem er ferðaráðgjafi hjá KILROY. Rakel flutti til Ástralíu í fyrra þar sem hún bjó í hálft ár. Þar starfaði hún við neyðarsíma KILROY og fékk tækifæri til að upplifa alls konar nýtt og lenda í skemmtilegum ævintýrum.
Rakel segir okkur frá þessari lífsreynslu og tekur okkur með í ferðalag um Ástralíu þar sem hún deilir sínum uppáhalds upplifunum.
Vertu með og fáðu innblástur fyrir næstu ferð! ✈️