Chubby húsbíllinn hentar fullkomlega fyrir tvo ferðalanga. Í honum er nóg pláss til að borða og sofa en aftast í bílnum er að finna eldunaraðstöðu. Í bílnum er að finna skemmtilega LED lýsingu og 2 USB hleðslustöðvar. Kæliboxið sem fylgir með bílnum mun sjá til þess að halda matnum ykkar og drykkjum köldum en það þarf ekki að endurhlaða það á tjaldsvæðum.
Leigukostnaðurinn á bílnum er ekki ósvipur því sem þú værir að borga fyrir rútumiða í Ástralíu og gistingu á þeim stöðum sem rútan stoppar á.
Vinsælast er að leigja húsbíl í Ástralíu á milli október og mars. Því fyrr sem þú bókar því ódýrari er bíllinn. Þegar að eftirspurnin er hærri því dýarari er bíllinn.
Ég vil vita meira