1. Skref
Deildu með okkur ástríðunni þinni fyrir ferðalögum og myndvinnslu með því að gera mínútu langt TikTok eð Instagram Reel. Veldu eitt af punktunum okkar hér fyrir neðan til þess að fjalla um og vertu eins skapandi og þér dettur í hug!
-
-
- Segðu okkur frá óvæntri ferðaupplifun
- Gefðu okkur þín bestu, og ekki þessi týpísku, ferðaráð
- Segðu okkur frá ástríðu sem þú býrð yfir eða hæfileika sem þig langar að tileinka þér (dans, köfun, klifur, hvað sem) og hvar í heiminum þú myndir vilja prófa það
2. Skref
Ekki gleyma að fylgja @kilroyiceland og tagga okkur í myndbandið þitt. Passaðu líka að taka fram nafn, aldur og draumaáfangastað í caption og bættu við myllumerkinu #explorerprogram2024.
3. Skref
Við veljum 3 einstaklinga sem komast í úrslit og þeir koma til okkar í viðtöl. Sigurvegarinn verður svo tilkynntur í lok maí 2024. Alla skilmála má finna neðst á þessari síðu - passaðu að lesa þá yfir áður en þú sækir um!
Við getum ekki beðið eftir því að sjá hvernig þú velur að sýna okkur skapandi hliðina þína í gegnum, myndefni og myndvinnslu!
