Kosta Ríka er æðislegur staður til þess að læra að surfa fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Að fara í surfskóla er frábær leið til þess að fá sem mest út úr dvölinni þinni í Kosta Ríka; þú lærir að surfa, færð aðgang að öllum búnaði og gistir á frábærum stað með fleiri hressum bakpokaferðalöngum víðsvegar að úr heiminum.
Þegar þú ert ekki að leika þér í öldunum hefur þú fullt frelsi til þess að gera það sem þú vilt! Kosta Ríka býður upp á eitthvað fyrir alla; einstaka náttúru og dýralíf, guðdómlegar strendur og alls kyns ævintýri fyrir þá sem elska að fá adrenalínkikk.
Surfskóli í Kosta Ríka er frábær viðbót við lengra ferðalag um Mið- og Suður-Ameríku.
Fá fría ráðgjöf