Langar þig að bæta líkamlegan styrk og þol á sama tíma og þú heimsækir draumaeyjuna Balí? Ef þú elskar líkamsrækt, þá muntu elska fitnessbúðirnar okkar á Balí. Hér er pláss fyrir alla og þú færð tækifæri til að sérsníða þitt eigið líkamsræktarprógram við komu. Þannig tryggir þú að þú fáir sem mest út úr dvöl þinni.
Vita meira
Hvers vegna fitness á Balí?
Besta svarið? Balí hefur allt. Fallegar strendur, töfrandi náttúra, frábær matur, iðandi staðbundin menning og frábær tækifæri til að bæta líkamlega heilsu.
Fitnessbúðirnar geyma góða aðstöðu þar sem auðvelt er að komast að ströndinni sem er staðsett í um 30 sekúndur frá gistirýminu þínu. Það gerist ekki betra en það!
Líkamsræktarprógrammið mun fyrst og fremst samanstanda af Crossfit æfingum en einnig verða annars konar líkamsrækt í boði og meira að segja eru jógatímar innifaldir.
6 góðar ástæður til að taka þátt í bootcamp á Balí
- Góður árangur: Í búðunum lærir þú sérstakar aðferðir til að ná markmiðum þínum meðan á dvölinni stendur.
- Frábær aðstaða: Það er ekki bara blóð, sviti og tár í þessum fitnessbúðum. Þú getur líka slakað á við sundlaugina, valið að fara í nudd og notið holla máltíða yfir daginn.
- Kraftmikil þjálfun: Margir missa einbeitingu og hvatningu vegna þess að þjálfunin verður fljótt of einslæg. Á Balí eru æfingarnar jafn fjölbreyttar og þær eru margar. Þar sem þú bætir þig á meðan dvölinni stendur mun þjálfunin fylgja þer. Þetta mun hjálpa til við að halda hvatanum í hámarki.
- Kynnist nýju fólki: Í fitnesscampinu muntu hitta fólk eins og þig, með sömu markmið og langanir og þú. Það er mikið félagslíf og þú færð þessa einstöku tilfinningu um að tilheyra hóp. Og hver veit? Kannski finnurðu næsta ferðafélaga þinn hér.
- Áhersla: Það getur verið erfitt að finna tíma þegar kemur að æfingum heima. Ef þú kannast við það, þá er þetta fullkomin lausn fyrir þig.
- Þú lærir heilbrigðar venjur: Það er mikið frelsi í fitnessbúðunum, og þá hefur þú frábært tækifæri til að setja heilbrigða pressu á sjálfan þig um að breyta um venjur í þínu hversdagslega lífi.
Ég vil vita meira