{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Kosta Ríka

costa-rica-snorkeling-isla-tortuga-cover
costa-rica-surfing-in-tamarindo-sidebar

Kosta Ríka – Paradís á jörð

Kosta Ríka bíður uppá ótrúlega fjölbreytilegt landslag þrátt fyrir að vera aðeins 51.000 km2. Í þessu fallega landi eru 35 þjóðgarðar sem samtals þekja 11% af landinu. Enginn annar staður getur stært sig af jafn mörgum dýrategundum á svona litlu svæði! Hægt er að finna yfir 850 mismunandi fuglategundir í þessari litlu paradís. Kosta Ríka er svo sannkallað draumaland náttúru- og dýralífsunnenda! En einnig þá sem elska að sörfa og liggja á störndinni í yndislegu andrúmslofti.

Fá fría ráðgjöf

Hvað á að gera á Kosta Ríka?

Fossafall er afar vinsælt sport, það er hægt að láta sig falla í gegnum fossa. Og nóg er af fossunum á Kosta Ríka!
Hið svokallaða "white water rafting" er mjög vinsælt sport og hægt að iðka á mörgum stöðum á Kosta Ríka. Landið er hinn fullkomni staður spennufíkla og ævintýramanna. 

Hvort sem þig langar að læra að kafa, bæta við þig frekari köfunarréttindum eða einfaldlega skella þér í fundive þá finnur þú það allt á Kosta Ríka. Upplifðu hina einstöku litadýrð sem leynist undir yfirborði sjávar. Hver veit nema þú rekist á skjaldbökur eða hákarla! Láttu drauminn rætast og lærðu köfun á Kosta Ríka.

Jaco er hinn fullkomni brimbrettastaður þar sem heimselítan kemur að æfa og keppa. Ef þú hefur brennandi áhuga á þessu vatnasporti ertu kominn á réttan stað! Hér geturðu fengið kennslu í sörfi og hér eru bestu strandpartíin!

Vegna stimpils Kosta Ríka sem brimbrettaparadís, býður höfuðborgin San Jose uppá góð og ódýr brimföt. Hér geturðu fyllt bakpokann þinn af fötum frá gæðamerkjum s.s. Volcom, DC og O'Neill. San Jose býður einnig uppá margt annað, til dæmis er einungis tveggja tíma keyrsla til Kyrrahafsins og Karíbahafsins. Strendur Karíbahafs henta vel þeim sem kjósa að liggja í sólbaði og synda í lygnu vatni en strendur Kyrrahafs draga meira að þá sem vilja fara á brimbretti.

Flugtíminn frá New York til Kosta Ríka er ekki nema um 5 tímar.

Fá frekari upplýsingar

Náttúru- og dýralífið

La Fortuna er fallegt svæði sem er fyrst of fremst þekkt fyrir eldfjallið Arenal. Hægt er að fara fjölbreyttar skoðunarferðir um svæðið og ekki sleppa því að prófa einhverja af heitu laugunum.

Mounteverde Cloud Forest náttúrusvæði eru tilvalin til lengri gönguferða - og ekki skemmir fyrir stórbrotið útsýnið.

Hjá Manuel Antonio við Kyrrahafsströndina er að finna vinsælasta þjóðgarð landsins. Hér eru framandi dýr, má nefna slöngur, apa, risavaxnar eðlur, letidýr og að sjálfsögðu fugla í öllum heimsins litum. Við mælum með að ráða leiðsögumann því með þeirra hjálp getur þú séð miklu fleiri dýr en þú gerir á eigin vegum. Þessir sérfræðingar vita nákvæmlega hvar þeir eiga að leita!

Tortuguero þjóðgarður er mikilvægasti varpstaður sæskjaldbaka í allri Mið-Ameríku og Karíbahafi. Ef maður kemur hingað á varptímanum sem er frá apríl til október geturðu séð fyrstu skref þessarra stórkostlegu dýra þegar þau leggja leið sína, strax eftir klekjun, í átt til hafs. Það er þriggja tíma sigling frá Puerto Limon til Tortuguero. Á leiðinni geturðu séð krókodíla, otra, apa, fljótaskjaldbökur, leðurblökur og fugla í öllum stærðum og gerðum. Algerlega ómissandi ferð!

Fá frekari upplýsingar

Staðir til að sjá á Kosta Ríka

San Jose er höfuðstaður og stærsta borg Kosta Ríka svo ekki láta hana framhjá þér fara á heimsókn þinni til landsins.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Kosta Ríka

Bloggið

Sjá fleiri blogg
alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.