{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
tegucigalpa-skyline-honduras-cover
tegucigalpa-flag-honduras-sidebar

Tegucigalpa – Silfurfjallið

Nafn höfuðborgar Hondúras, Tegucigalpa, merkir silfurfjallið þar sem hún var miðstöð námuvinnslu á nýlendutímum. Hún er staðsett í dal og það má segja að hún sé ekki fallegasta borg í heimi. Í raun er flestum byggingum troðið í fjallshlíðina og borgarmyndin er yfirfull af Pizza Hut, Burger King og KFC veitingastöðum sem eru í snyrtilegustu húsunum. Ferðamenn sem vilja skoða borgir gætu þó heillast af þessari blöndu af gömlum nýlendubyggingarstíl og nýtískulegum byggingum.

Fá fría ráðgjöf

Kirkja og markaður

Þar sem borgin er nýtískuleg höfuðborg getur þú fundið þar góða veitingastaði, banka, verslunarmiðstöðvar, nokkur söfn og kirkjur í nýlendustíl sem er þess virði að skoða. Dómkirkjan og Iglesia de Nuestra Señora de los Dolores eru staðsettar í sögulega hluta borgarinnar. Viskiptamiðja borgarinnar er í „la zona viva“ sem er á Boulevard Morazán. Þar eru áhugaverðar gamlar byggingar sem standa umhverfis Plaza de la Merced og ekki láta markaði miðborgarinnar framhjá þér fara en mundu að gæta þín á vasaþjófum.  

Páskavikan - Besti tíminn til að vera í Tegucigalpa 

Ef ferðalagið þitt er í páskavikunni munt þú upplifa mjög skemmtilega stemningu. Flestir íbúar borgarinnar hafa flúið á ströndina svo borgin er rólegri og miðbærinn er lokaður fyrir umferð svo hægt sé að leggja hin hefðbundnu og litríku sagteppi á göturnar. Þessi trúarlegu hátíðarhöld gefa borinni fallegan blæ, í nokkra daga.

Ef þú vilt sjá fallegt útsýni yfir Tegucigalpa, getur þú farið upp að fjallinu og að stóru styttunni af Kristi í Picacho Park. Það er uppáhalds helgarstaður innfæddra.

Að komast á milli staða í Tegucigalpa

Það getur verið ruglingslegt að komast á milli staða í Tegucigalpa. Umferðin er mjög þung og óskipulögð. Þegar þú ferðast um borgina er best að nota leigubíla og mundu að semja um verðið fyrirfram.

Gæði rútuferðarinnar þinnar fer eftir þeim klassa sem þú velur; lúxusrútur eru nýtískulegar, hafa loftkælingu og starfsmann sem býður upp á hressingu. Verðið fyrir þetta er ekki svo slæmt en gæðin eru miklu betri heldur en ef þú bókar þá ódýrustu. Þessar ódýru eru yfirfullar og talsvert meira hægfara.

Öryggi

Glæpir eru virkilegt áhyggjuefni í stórborgum í Mið-Ameríku. Forðastu að vera á ferðinni eftir að myrkrið skellur á og notaðu leigubíla frekar en að ganga. Það er gott að kunna pínulitla spænsku því það gæti hjálpað þér í mörgum aðstæðum.

Fá meiri upplýsingar

Staðir til að sjá í Tegucigalpa

Höfuðborg Hondúras er góð blanda af gömlum nýlendubyggingarstíl og nýtískulegum byggingum. Við mælum með að heimsækja borgina í páskavikunni og upplifa fegurðina í kringum hana. 

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Tegucigalpa

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Afþreyingar

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.