Helst af öllu er Queenstown gríðarvinsæll áfangastaður fyrir spennufíkla! Þar er hægt að stökkva einhver hæstu teygjustökk í heimi, fara í ævintýralegt þyrlu-rafting, þú getur prófað svifvængjaflug eða jafnvel flogið þinni eigin listflugvél. Allt er mögulegt í adrenalínhöfuðborg heimsins. Eina spurningin er hvort þú sért til í að standast áskorunina.
Miðbær Queenstown
Oft er sagt að borgin hafi fengið nafnið Queenstown vegna þess að hún væri svo falleg að drottningin gæti búið þar. En drottningar eru ekki þær einu sem hafa tekið eftir fegurð þessarar stórkostlegu borgar. Undanfarið hafa gullgrafarar, ævintýramenn, kvikmyndagerðarmenn, áhugafólk um vín, Hollywood stjörnur og forsetar Bandaríkjanna dregist að þessu töfrandi svæði og krafti fjalllendisins. Queenstown hefur samþjappaðan og fágaðan miðbæ sem fellur inn í fallegan flóa á ströndum Wakatipu vatns. Fjöllin í kringum bæinn afmarka hann og láta hann líta út fyrir að vera enn minni en hann er og það er frábært útsýni úr öllum áttum, hvert sem þú horfir. Það er alltaf góð stemming í miðbænum þar sem þú finnur blómlega bar- og kaffihúsasenu og getur einnig verslað.
Ertu til í að mæta ótta þínum?
Adrenalínfíklar finna paradís í Queenstown! Þar er allt mögulegt! Hentu þér niður í 109 metra djúpt gil í teygju, sjáðu heiminn eins og þú hefur aldrei séð hann áður þegar þú flýgur á hvolfi í áhættuflugvél, hoppaðu niður úr kláfi í 134 metra hæð ofan í Nevis ánna. Sameinaðu þyrluferð og frábært rafting niður Shotover ánna eða smelltu á þig brettinu og renndu þér í ósnortnum púðursnjónum hátt uppi í fjöllunum. Allt er mögulegt og þetta er bara byrjunin! Listinn er endalaus!
Hvað er hægt að gera í Queenstown?
Ævintýrin laða marga ferðamenn að Queenstown en það er margt annað í boði þar! Mesta aðdráttarafl landsvæðisins er hin einstaka náttúrufegurð sem það býr yfir; harðgerð fjöll, glæsileg stöðuvötn, kristalstært loftið og hinir ævafornu skógar.
Frá miðbæ Queenstown eru margar leiðir til að kanna náttúruna í kring – bæði á vatni, landi eða úr lofti. Uppgötvaðu fjöllin með sína hvítu tinda, fossana sem steypast fram af klettabrúnum, kristalstærar uppsprettur og læki. Farðu í bátsferð yfir nótt til að upplifa Milford Sound fjörðinn eða taktu flugið í loftbelg og svífðu yfir landsvæðið þar sem Lord of the Rings myndirnar voru teknar upp að hluta til. Sestu niður, slakaðu á og njóttu ferðarinnar!
Í Queenstown eru tvö þekkt skíðasvæði, Coronet Peak og The Remarkables, en bæði eru innan tuttugu mínútna ökuferðar frá miðbænum! Ef þú hefur efni á því er þetta rétti staðurinn til að fara i þyrlu-skíðaferð. Það er ógleymanleg lífsreynsla!
Gisting í Queenstown: lúxus eða viðráðanlegt verð
Þar sem Queenstown er mjög vinsæll áfangastaður fyrir adrenalínfíkla, laðar bærinn aðallega að sér ungt fólk og því er þar mikið um bakpokaferðalanga. Þú getur komist nálægt náttúrunni í Department of Conservation kofunum í fjalllendinu eða gist úti í náttúrunni sjálfri með því að tjalda á afskekktu tjaldsvæði.
Næturlífið
Queenstown er borg sem sefur nær aldrei, þar er líf frá morgni til kvölds. Fágaðir vínbarir, lifandi jasstónlist, og frábærir plötusnúðar. Löng sumarkvöld á bar undir berum himni þar sem þú getur fengið þér bjór sem bruggaður er á staðnum. Það toppar ekkert það að sitja við varðeld og hvíla sig eftir frábæran dag í fjallinu. Jafnvel þó að sólin setjist hættir ævintýrið í Queenstown aldrei!