The Ayers Rock kletturinn er úr sandsteini og er eitt helsta náttúruundur veraldar. Hann nær 348 metra upp í loftið og þó er mest af honum neðanjarðar. Hann er eitt helsta náttúrundur Ástralíu.
Litasinfónía
Uluru er sífellt að breyta um lit. Í morgunskímunni glansar hann í appelsínugulum og rauðum bjarma, dagsbirtan færir gula birtu yfir hann og þegar kvöldar verða litirnir dekkri, allt frá ljósbrúnum og upp í dökkgráan. Ferðamenn, alls staðar að úr heiminum, koma til að horfa á þennan klett við sólarupprás og sólarlag. Andrúmsloftið við hann er töfrandi klukkan 4 að nóttu þegar áhugasömustu ferðamennirnir hafa vaknað til að njóta sólarupprásarinnar. Náttúran er þögul og hægt er að greina útlínur klettsins í myrkrinu. Eftir nokkra stund sjást fyrstu geislar sólarinnar.
Gakktu umhverfis klettinn
Á meðan dagsbirtan leyfir, mælum við með því að þú farir í 10 km göngu umhverfis klettinn. Á leiðinni eru upplýsingaskilti sem segja sögu frumbyggja. Leyfilegt er að klifra upp klettinn, jafnvel þó frumbyggjar vildu óska þess að ferðamenn gerðu það ekki. Nokkur slys hafa orðið á ferðamönnum við klifrið og jafnvel banaslys. Því er líklegt að fljótlega verði tekið fyrir það að ferðamenn klífi klettinn.
Náttúran þarna í kring er stórbrotin og nálægt Uluru er hægt að sjá fleiri náttúruundur. Dæmi um þau eru hin gríðarstóra klettamyndun, Kata Tjuta, og það er frábær þjóðgarður um 300 km norðaustur af Uluru. Helsta aðdráttarafl hans er Kings Canyon, gríðarstórt gljúfur sem skiptir jörðinni í tvennt og nær allt að 300 metra dýpi.
Langar vegalengdir
Nálægt Uluru finnur þú vel útbúið tjaldstæði þar sem þú getur sofið í tjaldi eða undir stjörnubjörtum himni í eyðimörkinni. Vegalengdir geta verið miklar svo ef þú hefur ekki tíma til að eyða nokkrum dögum í rútu frá t.d. Adelaide eða Darwin til að komast til Ayers Rock, er auðveldast að fljúga að litla Ayers Rock flugvellinum eða til Alice Spring. Flugið frá Sydney er 3 klukkutímar sem sýnir best hvað þetta er í raun lööööng vegalengd. Við mælum þó með því að þú farir með rútu ef þú hefur tíma, þú munt sjá fjölmargt áhugavert á leiðinni. Frá Alice Springs er hægt að fara í fjölbreyttar ævintýraferðir sem fara til Uluru og að Kings Canyon og sem bónus færðu að kynnast rauðu eyðimörkinni.
Ruusa hjá KILROY hefur farið að skoða Ayers Rock. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt fá ráðleggingar um bestu ævintýraferðirnar ættir þú endilega að hafa samband við okkur.