{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Kóralrifið mikla

great-barrier-reef-queensland-australia-cover
great-barrier-reef-australia-green-sea-turtle

Kóralrifið mikla

Langar þig að upplifa stærsta og besta kóralvistkerfi heims? Þetta gríðarstóra kóralrif er draumastaður allra kafara og snorklara því sjávarlífið þar er svo fjölbreytt og neðansjávarlandslagið er einfaldlega stórkostlegt! Kóralrifið á sér réttmætan stað á heimsminjaskrá UNESCO og stór hluti af því er einnig verndaður af The Great Barrier Marine Park. Kóralrifið er heimili höfrunga, hvala, sækúa og mismunandi tegunda af skjaldbökum auk fjölmargra tegunda af fiskum í öllum regnbogans litum. Þú ættir að taka með myndavél sem virkar neðansjávar því þú munt skapa frábærar minningar!

Fá fría ráðgjöf

Hvar er best að byrja ævintýrið?

Airlie Beach er oft álitin byrjunarreitur fyrir ferðir um Whitsunday eyjar og kóralrifið mikla. Líkt og í Cairns er engin alvöru strönd þar, en nokkur vötn og lón. Þar getur þú slakað á, synt og grillað á almenningsgrillum. Flestar af ævintýraferðum KILROY fara frá þessum tveimur borgum. Við mælum sterklega með því að gista á live-aboards skipum því þá þarftu ekki að hugsa um að finna hótelgistingu. Venjulega siglir skipið hægt að næsta áfangastað svo þú færð tækifæri til þess að kafa á mörgum mismunandi stöðum. Snorklarar munu sjá margt líka, jafnvel meinlausa kóralhákarla eða fyndna kartöfluþorska.

Í Great Barrier kóralrifinu lifa yfir 400 tegundir af kórölum og 1500 tegundir af fiski svo þú getur rétt ímyndað þér hvað er ríkulegt náttúrulíf í þessum framandi hluta heimsins. Great Barrier rifið hentar byrjendum sem og reyndari köfurum. Þú munt ekki verða fyrir vonbrigðum með þessa ævintýraferð!

Fá meiri upplýsingar

Þegar þú ert ekki að kafa

Whitsunday Islands er staður sem allir Ástralar myndu vilja fara að minnsta kosti einu sinni til. Sandstrendurnar eru með fínum, hvítum sandi og eru einfaldlega stórkostlegar. Eyjarnar eru staðsettar í um 8 klukkustunda fjarlægð frá Cairns og það er langbest að skoða þær með því að sigla þangað á góðri seglskútu.

Cape Tribulation er nálægt Cairns og þar eru frábærar gönguleiðir í regnskóginum. Hægt er að fara í ævintýraferð þar sem þú færð frábæra upplifun af þessu áhugaverða náttúruverndunarsvæði.

Tully River er líka spennandi dagsferð frá Cairns, sérstaklega fyrir þá sem eru að leita að ævintýri; það er frábært að fara í rafting þar! Það er best að skoða hinar afskekktu Fitzroy eyjar og nágrenni þeirra með því að sigla á kajak eða snorkla. Ekki missa af þessari perlu í hafinu.

Fá meiri upplýsingar

Köfun og snorkl

Great Barrier kóralrifið er heimsklassastaður til að kafa og snorkla. KILROY hefur góð tilboð fyrir þá sem vilja læra að kafa og margir ferðamenn hafa sagt að þetta sé hverrar krónu virði.

Ábyrg ferðamennska

Great Barrier kóralrifinu standa margar umhverfisógnir fyrir dyrum eins og t.d. ferðamennska, veðurfarsbreytingar og breytingar á vistkerfi. Þú getur hjálpað við að vernda kóralrifið með því að vera sanngjarn ferðamaður og snerta ekki neitt á meðan þú kafar eða snorklar. Ekki gefa fiskunum og gættu að froskalöppunum þínum svo þú brjótir ekki kórala.

Ferðaráð

Þegar þú ert að skipuleggja ferðina þína, taktu þá með í reikninginn að rigning getur haft áhrif á það hvað vatnið er tært. Desember og janúar eru góður tími til þess að ferðast á, þrátt fyrir að þá sé mjög heitt. Köfun og afslappandi frí í Kóralrifinu mikla bíður eftir þér! Bókaðu þitt ævintýri með okkur. 

Fá fleiri ferðaráð

Staðir til að sjá í kringum Kóralrifið mikla

Það er nauðsynlegt að kafa eða snorkla í Kóralrifinu mikla. Þess á milli mælum við með að heimsækja Whitsunday eyjar, ganga um Cape Tribulation og skella sér í rafting í Tully River.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Kóralrifsins

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Afþreyingar hjá Kóralrifinu mikla

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.