Ferð í Kakadu þjóðgarðinn í norðurhluta Ástralíu er dásamleg upplifun sem veitir þér þá tilfinningu að þú hafir fengið að upplifa „alvöru“ Ástralíu. Hér í stærsta þjóðgarði landsins er mikið af sandsteinsklettum, fossum, fallegu plöntulífi og áhugaverðu dýralífi. Svæðið er sérstaklega þekkt fyrir marga og stóra krókódíla, en einnig fyrir kóalabirni og kengúrur. Fljótlega munt þú skilja hvers vegna Kakadu er á heimsminjaskrá UNESCO.
Að ferðast til Kakadu þjóðgarðsins
Best er að ferðast til Kakadu þjóðgarðarins frá borginni Darwin sem er höfuðborg Northern Territory svæðisins. Þaðan er annaðhvort hægt að ferðast með bíl í þjóðgarðinn eða fara í skipulagða ævintýraferð. Kosturinn við slíkar ferðir er að þú færð góða kynningu á þjóðgarðinum frá leiðsögumönnum sem margir eru uppaldir á svæðinu. Leiðsögumennirnir eiga það sameiginlegt að þeir eru sérfræðingar í garðinum og vita nákvæmlega hvar og hvenær þeir eiga að finna áhugaverð dýr og náttúrufyrirbæri.
Það er ekki einungis náttúran og dýralífið sem gerir Kakadu áhugaverðiann því hér eru líka fjölmörg hellamálverk og minjar frá tímum frumbyggja. Það er auðveldlega hægt að eyða heilli viku í Kakadu án þess að leiðast!
Kakadu þjóðgarðurinn er staðsettur á Arnhem Land svæðinu, stóru og villtu landsvæði sem nær yfir mikinn hluta Northern Territory. Þar er mikið af hitabeltisströndum, ám og hrikalegum gljúfrum en þar er einnig mikið af krókódílum og öðrum hættulegum dýrum svo það eru fáir staðir þar sem hægt er að synda.
Hápunktar Kakadu þjóðgarðsins
Í Kakadu er nauðsynlegt að sjá fossana Jim Jim Falls og Twin Falls sem virðast vera í keppni um hvor vekur meiri hrifningu. Þessir fallegu fossar falla niður af sandsteinsklettum í allt að 215 metra hæð og niður í dásamlegar náttúrulaugar þar sem sumstaðar er hægt að synda (mundu að spyrja alltaf leiðsögumenn eða innfædda!) Laugarnar eru umkringdar litríkum gróðri og maður getur ekki annað en spurt sjálfan sig hvort maður sé í paradís.
Skoðaðu líka Nourlangie, við endamörk Arnhem Land. Þar er besta safn hellamálverka Kakadu, fyrir neðan stórkostlega rauða sandsteinskletta sem eru skreyttir með appelsínugulum, svörtum og hvítum tónum. Það er auðvelt að skilja hvers vegna þessi staður var og er svo mikilvægur fyrir frumbyggja svæðisins.
Ekki missa af því að heimsækja Gunlom, annan virkilega fallegan foss sem fellur af klettasyllu og ofan í náttúrulaug.
Það er margt annað að sjá og skoða í Kakadu, til dæmis Maguk og Ubirr. Maguk er staðsett í suðurhluta garðsins og er friðsælli hluti af Kakadu sem mjög fáir ferðamenn heimsækja. Í Ubirr eru mörg málverk og meiri ró og næði en á mörgum öðrum stöðum þjóðgarðarins.
Veður í Kakadu og Northern Territory
Á regntímabilinu verður mjög blautt á þessum slóðum. Þetta er á milli nóvember/desember og apríl. Á þessu tímabili getur verið erfitt að heimsækja Kakadu því flóð og þrumuveður eru algeng. Hins vegar er, eins og gefur að skilja, meira vatn í fossunum á þessum árstíma heldur en t.d. við lok þurrkatímabilsins, september-nóvember. Þá er yfirleitt ekkert mjög spennandi að skoða garðinn þar sem hann er frekar þurr og tómlegur.