{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
bangkok-wat-arun-temple-at-sunset-cover
bangkok-thailand-grand-palace-decorated-statue-sidebar

Bangkok

Bangkok er stórborg sem býður upp á allt það sem bakpokaferðalangar gætu óskað sér. Þetta er mögulega frægasta og mest heimsótta bakpokaborg heims, staður þar sem auðvelt og ódýrt er að ferðast og þar af leiðandi góður upphafspunktur fyrir frekari ferðalög um heiminn. Frá Bangkok er auðvelt að ferðast suður til nokkurra bestu stranda heims sem og til annarra áfangastaða í Asíu. Þar að auki er ótrúlega margt að sjá og gera í Bangkok svo borgin sjálf gefur frábæra mynd af því sem Suðaustur-Asía hefur upp á að bjóða.

Fá fría ráðgjöf

Heitasta borg heims

Hvort sem þú ert að ferðast til Bangkok í fyrsta eða tíunda skiptið muntu alltaf finna eitthvað nýtt og skemmtilegt til að upplifa og gera. Hér getur þú fundið nútímalega skýjakljúfa, nýtískulegar neðanjarðarlestir, bæði hefðbundna og óvengjulega markaði eins og hinn fræga fljótandi markað, falleg hof, yndislega veitingastaði og svo er næturlífið hér frábært. Bangkok er lífleg og heillandi borg og ekki að ástæðulausu sem hún hefur verið kosin "heitasta borg heims".

Hallir og hof í Bangkok

Um leið og þú kemur þér af Kaho San Road, heimsins frægustu götu fyrir bakpokaferðalanga og skemmtilegur samkomustaður ferðalanga, er kominn tími til að skoða allt hitt sem Bangkok hefur upp á að bjóða. Skoðaðu hina risastóru og fallegu höll, Wat Phra Kaew, sem er nálægt Khao San Road og algjört must see. Þaðan skaltu fara að Wat Pho, framhald af Wat Phra Kaew og heimili frægu styttunnar "Leaning Buddha".

Floating market og vötn Bangkok

Þegar þú hefur skoðað hofin er kominn tími til að skoða lífsæð Bangkok: Chao pray ánna og hin mörgu síki og skurði borgarinnar, en Bangkok er oft kölluð Feneyjar Asíu. Við mælum með að þú farir í stutta bátsferð og skoðir líflega hafnarbakkana. Svo er um að gera að skella sér á einn vinsælasta áfangastað túrista í Bangkok, hinn fræga "Floating Market". Nánast allar myndir frá Bangkok sýna þennan exótíska stað þar sem þú getur keypt allt frá matvöru til vefnaðar og allt er selt beint af bátum. Markaðurinn er í 15 km fjarlægð frá miðbæ Bangkok.

Markaðir í Bangkok

Það eru margir aðrir markaðir í Bangkok, t.d. Nakhon Kasem sem staðsettur er í Kínahverfi Bangkok, einnig þekktur undir hinu skemmtilega nafni "Þjófamarkaðurinn". Einnig má nefna Praturam markaðinn á Siam Square sem selur allt frá úrum til undirfata. Ekki má svo gleyma hinum fræga Bobe markaði sem er sérstaklega þekktur fyrir að selja fatnað.

Fá meiri upplýsingar

Verslunarmiðstöðvar í Bangkok

Ef þú verður þreyttur á öllum mörkuðunum, en værir samt alveg til í að versla meira, er til allrar hamingju nóg af verslunarmiðstöðvum í Bangkok. Sem dæmi má nefna Mah Book Krong (MBK), sem er líklega sú ódýrasta í borginni, hina nýju og nútímalegu Siam Paragon og hina svakalega dýru The Emporium. Í Bangkok er einnig að finna stærstu verslunarmiðstöð Suðaustur Asíu; Central World.

Götulíf Bangkok

Ekki gleyma að njóta götulífsins og hins sérstaka andrúmslofts sem einkennir Bangkok. Borgin er sérstaklega fræg hvað þetta varðar og eftir dvöl í Bangkok ertu vel undirbúinn undir frekari ferðalag um Tæland.

Fá meiri upplýsingar

Staðir til að sjá í Bangkok

Það er ótalmargt að gera og sjá í höfuðborg Tælands, Bagkok. Við mælum með að heimsækja Wat Phra Kaew höllina og styttuna "Leaning Buddha", kíkja á hin fræga "Floating Market" og njóta þess að rölta um götur Bangkok. 

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Bangkok

alt

Hannaðu þína eigin ferð til Bangkok

Vilt þú ferðast um heiminn og til Bangkok á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína og velur til dæmis Bangkok sem einn af áfangastöðunum
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt til Bangkok sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding! 

Byrjaðu að hanna þína ferð til Bangkok

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.